Gilsárvirkjun í Múlaþingi
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Gilsárvirkjun, 6,7 MW vatnsaflsvirkjun í Múlaþingi skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim má finna hér .
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 23. febrúar 2024.