Fréttir


4.7.2017

Frekari útvíkkun á flæðigryfjum á Grundartanga

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að frekari útvíkkun á flæðigryfjum á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík. 

Ákvörðunina má einnig skoða hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 6. ágúst 2017.