Framleiðsluaukning í seiðaeldisstöð Háafells ehf. á Nauteyri, Strandabyggð
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á allt að 800 tonnum af lax- og regnbogasilungsseiðum á ári í seiðaeldisstöð Háafells ehf. Nauteyri, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Hana er einnig að finna
hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 19. janúar 2016 .