Fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss, Borgarbyggð
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss, Borgarbyggð, skuli háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 1. apríl 2022.