Endurbætur á Þingvallavegi milli þjónustumiðstöðvar og syðri vegamóta við Vallarveg, Bláskógabyggð
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurbætur á Þingvallavegi milli þjónustumiðstöðvar og syðri vegamóta við Vallarveg, Bláskógabyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 23. mars 2018.