Endurbætur á Skeiða- og Hrunamannavegi og efnistaka úr Gýgjarhólskoti, Bláskógabyggð
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhugaðar endurbætur á Skeiða- og Hrunamannavegi og efnistaka úr Gýgjarhólskoti, Bláskógabyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28. febrúar 2020.