Efnistaka sunnan Högnhöfða í landi Úthlíðar
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að efnistaka sunnan Högnhöfða í landi Úthlíðar, Bláskógabyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,105 Reykjavík.
Ákvörðunina er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 29. mars 2016.