Fréttir


17.10.2024

Efnistaka í Sandártungu, Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að efnistaka í Sandártungu, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Gögn málsins eru aðgengileg hér og á Skipulagsgátt.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 18. nóvember 2024.