Dýpkun Grynnslanna, Sveitarfélaginu Hornafirði
Mat á umhverfisáhrifum -ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að dýpkun Grynnslanna, Sveitarfélaginu Hornafirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér, ásamt greinargerð , umsögnum umsagnaraðila og svörum framkvæmdaraðila.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 3. október 2022.