Breyting á skipulagslögum sem varða hagkvæmar íbúðir
Nýlega tóku gildi breytingar á skipulagslögum, nr. 123/2010. Samkvæmt
breytingunni hafa sveitarfélög nú heimild til að gera kröfu um að við gerð
deiliskipulags fyrir ný íbúðarsvæði verði allt að 25% af heildarfermetrafjölda
íbúða fyrir hagkvæmar íbúðir, þ.e. íbúðir sem falla undir lög um almennar
íbúðir, nr. 52/2016, og íbúðir sem falla undir VI. kafla A og VIII.
kafla laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Heimildin gildir hvort sem landeigandi
er sveitarfélag, ríki eða einkaaðili.
Hér má sjá lagabreytinguna eins og hún birtist í Stjórnartíðindum.