Fréttir


2.8.2024

Aukin móttaka úrgangsolíu í Örfirisey

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð umhverfismati

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin móttaka á úrgangsolíu í Örfirisey í Reykjavík, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Gögn málsins eru aðgengileg hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 3. september 2024.