5.500 ha skógræktaráform í Ljárskógum í Dölum, Dalabyggð
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að 5.500 ha skógræktaráform í Ljárskógum í Dölum, Dalabyggð skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér, ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og svörum framkvæmdaraðila.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. febrúar 2024.