Ákvarðanir um endurskoðun umhverfismats
Þegar meira en 10 ár eru liðin frá mati á umhverfisáhrifum framkvæmdar og ekki hafa verið veitt leyfi til framkvæmda, tekur Skipulagsstofnun ákvörðun um hvort endurskoða þurfi umhverfismatið, sbr. 12. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum.
Einnig hefur verið óskað eftir ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun umhverfismats, þótt ekki séu liðin 10 ár frá því umhverfismat framkvæmdar fór fram. Um slík mál fer samkvæmt stjórnsýslulögum og óskráðum reglum stjórnsýsluréttar, þar sem ekki er fjallað um möguleika á endurskoðun innan 10 ára í lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvarðanir um endurskoðun umhverfismats skv. 12. gr laga um mat á umhverfisáhrifum
Framkvæmd | Ákvörðun Skipulagsstofnunar | Úrskurður úrskurðarnefndar |
---|---|---|
Bjarnarflagsvirkjun, Skútustaðahreppi | 7.11.2014 Endurskoðun að hluta | 5.10.2017 Staðfest að hluta |
Hvammsvirkjun | 16.12.2015 Endurskoðun að hluta | 15.02.2018 Staðfest |
Uppbygging ferðaþjónustu á Hveravöllum |
26.06.2017 Endurskoðun | 21.02.2019 Staðfest að mestu leyti |
Aðrar ákvarðanir um endurskoðun umhverfismats
Framkvæmd | Ákvörðun Skipulagsstofnunar | Úrskurður ráðherra/ úrskurðarnefndar |
---|---|---|
Þjónustmiðstöð í Landmannalaugum | 25.8.2023 Beiðni vísað frá | |
Suðurnesjalína 2 | 27.01.2023 Beiðni vísað frá | |
Þorlákshafnarlínur 2 og 3 | 19.10.2022 Beiðni vísað frá | |
Hvalárvirkjun | 31.05.2018 Beiðni vísað frá | |
Suðvesturlínur | 15.5.2017 Beiðni vísað frá | |
Háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka | 3.11.2016 Beiðni hafnað | |
Hringvegur um Hornafjörð | 4.7.2016 Beiðni vísað frá | 13.11.2017 Staðfest |
Raflínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka | 8.9.2015 Beiðni vísað frá | |
Raflínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka | 31.8.2015 Beiðni vísað frá | Kærð - Vísað frá |
Blöndulína 3 | 29.7.2015 Beiðni hafnað | Kærð - Vísað frá |
Vestfjarðavegur um Reykhólahrepp | 26.5.2015 Endurskoðun að hluta | Kærð - Vísað frá |
Suðvesturlínur | 23.6.2014 Beiðni hafnað | Kærð - kæra dregin til baka |