Framkvæmdir sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Umhverfismat skal ávallt gert fyrir tilteknar stærri framkvæmdir. Einnig eru tilgreindar aðrar framkvæmdir í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana sem eru tilkynningarskyldar. Fyrir þær er ákveðið í hverju tilviki hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati.
Leiðbeiningar
- Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
- Leiðbeiningar Evrópusambandsins um umhverfismat framkvæmda
Framkvæmdaflokkar
Í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana eru tilgreindir tveir flokkar framkvæmda, A og B. Framkvæmdir í flokki A eru matsskyldar, þ.e. ávallt háðar umhverfismati. Framkvæmdir í flokki B eru tilkynningarskyldar, þ.e. fyrir þær er ákveðið í hverju tilviki hvort framkvæmd skuli háð umhverfismati.
Flokkur A
Flokkur A nær yfir stærri framkvæmdir sem líklegar eru til að geta haft umtalsverð umhverfisáhrif. Þær eru ávallt háðar umhverfismati. Meðal framkvæmda í flokki A eru öll orkuver með 10 MW uppsett rafafl eða meira og efnistaka sem raskar 25 ha svæði eða stærra eða efnismagn er 500.000 m3 eða meira.
Málsmeðferð framkvæmda í flokki A hefst með gerð matsáætlunar.Flokkur B
Flokkur B tekur til framkvæmda sem liggja neðan viðmiðunarmarka í flokki A og fleiri tegunda framkvæmda sem kunna að geta haft umtalsverð umhverfisáhrif. Framkvæmdir í flokki B eru tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunar, sem tekur ákvörðun í hverju tilviki hvort viðkomandi framkvæmd skuli háð umhverfismati. Framkvæmdir í flokki B sem eru undir viðmiðunarmörkum sem tilgreind eru í viðauka við umhverfismatslögin eru einnig tilkynningarskyldar, ef þær eru fyrirhugaðar á verndarsvæði. Meðal framkvæmda í flokki B eru nýræktun skóga á 200 ha svæði eða stærra og vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira (allt að 10 MW).
Málsmeðferð framkvæmda í flokki B hefst með tilkynningu.Yfirlit yfir framkvæmdir í flokkum A og B má finna í 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.