Umhverfismatsdagurinn 2024

  • 11.6.2024, 9:00 - 12:00, Þjóðminjasafn Íslands

Umhverfismatsdagurinn, árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar um umhverfismat, verður haldinn þann 11. júní næstkomandi, í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Í ár verður sjónum sérstaklega beint að eftirfylgni umhverfismats við framkvæmdir og starfsemi – en yfirskriftin er: „Er umhverfismat endastöð eða upphaf?“

Beint streymi frá Umhverfismatsdeginum.

Ráðstefnan mun standa frá 9 til 12 og verður fundargestum boðið upp á morgunverð.

Á ráðstefnunni mun Jos Arts hjá Groningen-háskóla segja frá nýlegum leiðbeiningum um eftirfylgni umhverfismats, Landsvirkjun og Vegagerðin deila af sinni reynslu við eftirfylgni ásamt umfjöllun um samlegðaráhrif og vöktun vegna vatnstöku.

Skipulagsstofnun hvetur fagfólk, hagsmunaaðila og annað áhugafólk um umhverfismat til að taka daginn frá. Skráning fer fram hér

Húsið opnar kl. 8.45 og eru öll velkomin. Fundurinn verður einnig sendur út í beinu streymi sem verður aðgengilegt á skipulag.is og einnig á facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Fjarfundargestir þurfa ekki að skrá sig til þátttöku.

Dagskrá:

Opnunarávarp

Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar

EA Follow-up - The end of the Beginning

Jos Arts, prófessor í umhverfis- og innviðaskipulagi í háskólanum í Groningen

Teigsskógur – Vegur af himnum ofan

G. Reynir Georgsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni

Kaffihlé

Tökum af stað á traustum grunni

Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélag og umhverfi, Landsvirkjun

Grunnvatnið og nýting þess í landeldi

Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands

Umræður í pallborði

Frummælendur ásamt Brynju Dögg Ingólfsdóttur, umhverfis- og skipulagsstjóra Hornafjarðar