Skipulagsdagurinn 2019
Norðurljósasal Hörpu, 8. nóvember
Skipulagsdagurinn 2019 – vettvangur umræðu um skipulagsmál.
Norðurljósasal Hörpu 8. nóvember kl. 9-16
Upptökur fyrirlestra og glærur má nálgast hér fyrir neðan.
Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna helguð umræðu um skipulagsmál sem Skipulagsstofnun stendur fyrir í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Skipulag um framtíðina, samspil skipulags við aðra áætlanagerð um byggð, samgöngur og nýtingu lands.
Með skipulagi er mótuð umgjörð um daglegt líf okkar til langrar framtíðar. Skipulag er eitt af helstu stjórntækjum stjórnvalda til að vinna að aðgerðum í loftslagsmálum – til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu og bregðast við áhrifum loftslagsbreytinga. Um leið er mikilvægt að önnur áætlanagerð um byggð, samgöngur og nýtingu lands, eins og gerð húsnæðis- og samgönguáætlana, sé tvinnuð inn í og taki mið af skipulagi bæja og landsvæða.
Á Skipulagsdeginum í ár beinum við sjónum að gerð aðalskipulags sveitarfélaga. Fjallað verður um hvernig virkja má aðalskipulag sem best sem stefnumótunar- og stjórntæki um þróun byggðar til framtíðar. Rætt verður um samspil skipulags við gerð húsnæðisáætlana og áætlana í samgöngumálum, meðal annars með tilliti til vinnusóknarsvæða. Einnig um samspil skipulags við áætlanir um ferðaþjónustu og stefnu um framfylgd heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt verður sagt frá vinnu við mótun landsskipulagsstefnu um loftslag, landslag og lýðheilsu og kynnt innleiðing og ávinningur stafrænnar skipulagsgerðar.
Dagskráin hefst með ávarpi ráðherra skipulagsmála, Guðmundar Inga Guðbrandssonar, en í kjölfar þess slær rithöfundurinn Andri Snær Magnason tóninn fyrir daginn með hugvekju um veruleika og viðfangsefni skipulagsgerðar á tímum loftslagsbreytinga. Síðan taka til máls forstjóri Skipulagsstofnunar, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og fulltrúar sveitarstjórna víða um land auk annarra sem hafa fram að færa forvitnilega sýn og þekkingu um skipulagsmál í ólíku samhengi. Í lok dagskrár verða panelumræður með spurningum úr sal. Fundarstjóri er Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlamaður.
Þátttökugjald er 6.000 kr og er innifalið hádegisverður og kaffiveitingar. Námsmenn greiða hálft gjald. Húsið opnar kl. 8.15 og eru gestir hvattir til að mæta tímanlega og nýta sér vistvæna ferðamáta. Bent er á að strætisvagnaleiðir 1, 3, 6, 11, 12, 13 og 14 stoppa hjá Hörpu. Þá eru hjólastæði norðanmegin við Hörpu og í bílakjallara.
Streymt verður af Skipulagsdeginum á vef Skipulagsstofnunar.
Skipulagsdagurinn er í ár haldinn á alþjóðlega skipulagsdeginum, World Town Planning Day.
Dagskrá:
8.15 | Húsið opnar, skráning |
9.00 | Ávarp umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar Upptaka |
9.10 | Um endurhönnun alls Upptaka Andri Snær Magnason, rithöfundur |
9.40 | Af vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga Glærur Upptaka Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga |
9.55 | Skipulagsgerð á vendipunkti Glærur Upptaka Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar |
10.15 |
Landsskipulagsstefna um loftslag, landslag og lýðheilsu |
Loftslag, landslag, lýðheilsa – meira en fögur fyrirheit Glærur Upptaka Hrafnhildur Bragadóttir, sviðsstjóri á Skipulagsstofnun |
|
10.35 |
Kaffihlé |
10.50 |
Skipulag í samspili við áætlanagerð um húsnæðis- og samgöngumál |
Reynslusögur af mótun og innleiðingu húsnæðisáætlana Glærur Upptaka Sverrir Bollason, skipulagsverkfræðingur hjá VSÓ rágjöf |
|
Reynsla og áhrif húsnæðisáætlunar Norðurþings á skipulag Glærur Upptaka Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings |
|
Samgöngu- og þróunarásar á höfuðborgarsvæðinu – forsenda farsællar byggðaþróunar Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri á höfuðborgarsvæðinu Glærur Upptaka |
|
Almenningssamgöngur milli byggða Glærur Upptaka Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu |
|
12.00 |
Hádegishlé |
12.45 |
Stafrænt skipulag |
Staða og framtíð stafræns skipulags Glærur Upptaka Helena Björk Valtýsdóttir, teymisstjóri landupplýsinga á Skipulagsstofnun |
|
Stafrænt skipulag – Ný nálgun. Úr teiknikerfum (CAD) í landupplýsingakerfi (GIS) Gréta Hlín Sveinsdóttir, fagstjóri hjá Eflu Glærur Upptaka |
|
Bætt aðgengi að skipulagi – stafrænt skipulag á Akureyri Glærur Upptaka Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsstjóri Akureyrarbæjar |
|
13.30 |
Skipulag í samspili við stefnumótun um heimsmarkmið SÞ |
Heimsmarkmiðin sem regnhlíf í skipulagsvinnu Glærur Upptaka Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps |
|
Endurskoðun aðalskipulags Kópavogs og samþætting heimsmarkmiðanna Glærur Upptaka Bergljót Sigríður Einarsdóttir, verkefnisstjóri aðalskipulags hjá Kópavogsbæ |
|
14.10 |
Skipulag í samspili við áætlanagerð um ferðamál |
Sögur af sjómennsku á þurru landi Glærur Upptaka Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar |
|
Áhrif ferðaþjónustu á mótun aðalskipulags Grundarfjarðar - forsendur og framtíðaráætlanir um ferðamál Glærur Upptaka Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar |
|
15.00 |
Skipulag um framtíðina – umræður með spurningum úr sal |
|
Þátttakendur: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar Guðjón Bragason, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga Jóhannes Þórðarson, arkitekt Glámu-Kími Jökull Sólberg Auðunsson, ráðgjafi Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar |
16.00 |
Ráðstefnuslit, léttar veitingar |