Um Skipulagsgátt
Hvað er Skipulagsgátt?
Skipulagsgátt er nýjung við skipulagsgerð, umhverfismat og framkvæmdaleyfisveitingar. Í gáttinni eru aðgengilegar á einum stað allar skipulagstillögur, umhverfismat og framkvæmdaleyfi sem eru til kynningar á landinu hverju sinni, frá upphafi hvers ferils til enda. Gáttin er opin öllum og var tekin formlega í gagnið frá 1. júní 2023. Þar eru birt öll ný mál sem varða skipulagsáætlanir, umhverfismat og útgáfu framkvæmdaleyfa.
Hvernig getur Skipulagsgátt nýst mér?
Í Skipulagsgátt getur þú:
- Skoðað öll mál sem eru til kynningar hverju sinni og sótt gögn þeirra.
- Gert athugasemdir við mál á kynningartíma þeirra.
- Gerst áskrifandi og fengið tilkynningar um ný mál eða uppfærslur mála í gáttinni eftir þeim málaflokkum eða staðsetningu sem hentar þér.
Skoðaðu þig um í Skipulagsgáttinni: https://skipulagsgatt.is/
Ertu með fyrirspurn?
Hafir þú fyrirspurn um Skipulagsgátt er tekið á móti þeim í gegnum netfangið skipulagsgatt@skipulag.is.