Rannsóknar- og þróunarsjóður
Rannsóknar- og þróunarsjóður Skipulagsstofnunar var settur á laggirnar árið 2011, á grundvelli heimildar sem sett var í skipulagslög árið 2010 um að verja megi fé úr Skipulagssjóði til að styrkja rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði skipulagsmála.
Að jafnaði er úthlutað úr sjóðnum einu sinni á ári að undangenginni auglýsingu. Árið 2019 verður ekki úthlutað úr sjóðnum.
Við mat á umsóknum er horft til þess að verkefnin séu líkleg til að skila hagnýtum niðurstöðum fyrir skipulagsyfirvöld og fagaðila við gerð skipulags og umhverfismats.
Umsóknareyðublað sem má nálgast hér.
Um skil á lokaskýrslum rannsóknar- og þróunarverkefna
Skila skal lokaskýrslum verkefna sem hlotið hafa styrk úr Rannsóknar- og þróunarsjóði til Skipulagsstofnunar, rafrænt (á pdf-formi) á netfangið skipulag@skipulag.is. Í þeim skal geta þess að verkefnið sé styrkt af Rannsóknar- og þróunarsjóði Skipulagsstofnunar en ekki skal merkja verkefnisskýrslur með merki Skipulagsstofnunar. Lokaskýrslur verkefna eru birtar á vef Skipulagsstofnunar.
Úthlutanir
2018
Íslensk þýðing og útgáfa bókarinnar Mannlíf milli húsa eftir danska arkitektinn Jan Gehl
Verkefnisstjóri: Anna María Bogadóttir, arkitekt
Íslensk þýðing og útgáfa bókarinnar Livet mellem husene eftir Jan Gehl sem ber titilinn Mannlíf milli húsa í íslenskri þýðingu. Bókin sem er frá 1971 er ennþá talin lykilrit í arkitektúr, skipulagi og borgarfræðum.
Sustainable development of Kvosin - 101 Reykjavík: The potential impact of shared spaces on community and tourism
Verkefnisstjórar: Birgir Jóhannsson, arkitekt og Astrid Lelarge, sagnfræðingur.
Tilgangur verkefnisins er að skoða möguleika á þróun samrýma í Kvosinni og meta hvaða áhrif það hefði á nærsamfélagið og ferðamennsku. Verkefninu er einnig ætlað að gagnast sem verkfæri sem yfirvöld geta nýtt sér í skipulagsgerð.
Eftirspurn bíla- og hjólastæða á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnisstjóri: Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá EFLU.
Tilgangur verkefnisins er að meta eftirspurn eftir bíla- og hjólastæðum við mismunandi landnotkun á höfuðborgarsvæðinu. Vonast er til að niðurstöður verkefnisins muni nýtast sveitarfélögum og þeim sem vinna við skipulag að ákvarða nauðsynlegan fjölda bíla- og hjólastæða.
Mat á kolefnisspori á skipulagsstigi – skref í átt að kolefnishlutleysi
Verkefnisstjóri: Helga J. Bjarnadóttir, efna- og umhverfisverkfræðingur og sviðsstjóri Umhverfissviðs hjá EFLU
Tilgangur verkefnisins er að skoða hvernig hægt er að meta kolefnisspor strax á skipulagsstigi og í kjölfarið setja kröfur í skilmála um að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda frá byggð, landnotkun og samgöngum og aukna bindingu í gróðri
Verslun og skipulag
Verkefnisstjóri: Sverrir Bollason, skipulagsverkfræðingur hjá VSÓ
Tilgangur verkefnisins er að öðlast betri skilning á samspili dagvöruverslunar í þéttbýli og skipulagsmála sem stýra þróun verslunarinnar. Rannsóknir á samspili verslunar og skipulags veitir innsýn inn í hvaða þættir hafa áhrif á lífvænleika verslunarinnar. Slík rannsókn gæti einnig hjálpað fasteignaeigendum og rekstraraðilum verslunar að velja lífvænlega staði og þróa líflega kjarna, hvort sem er á hverfis- eða borgarvísu.
2017
Aðkoma ungmenna aðskipulagsmálum er varða umhverfið
Verkefnisstjóri: Pétur Halldórsson formaður félagsins Ungir umhverfissinnar
Almenningssamgöngur á landsvísu – hvaða þættir skipta máli, núverandi staða og þróunarmöguleikar
Verkefnisstjóri: Bergþóra Kristinsdóttir fagstjóri hjá EFLU verkfræðistofu
Bæjarskipulag og mótun umhverfis á Íslandi á 20. öld - Skipulagssaga Íslands
Verkefnisstjóri: Haraldur Sigurðsson sagnfræðingur og skipulagsfræðingur, Crymogea
Quest for sustainable Reykjavik Capital Region: lifestyles, attitudes, transport habits, well-being and climate impact of young adults (SuReCaRe)
Verkefnisstjóri: Jukka Heinonen prófessor við umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
Sjálfbær byggð í dreifbýli - flokkun landbúnaðarlands í átt að sjálfbæru matvælakerfi
Verkefnisstjóri: Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur
2016
Landslag og þátttaka
Verkefnisstjóri: Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Heimspekistofnun Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
Svæðisbundin skipulagsgerð fyrir haf- og strandsvæði næst landi - Raundæmið SkjálfandiVerkefnisstjórar: Óli Halldórsson og Helena E. Ingólfsdóttir, Þekkingarneti Þingeyinga
Víðerni á miðhálendi Íslands - rýnihóparannsókn á viðhorfum almennings
Verkefnisstjóri: Þorvarður Árnason, Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Hornafirði
2015
Þétting byggðar á Akureyri
Verkefnisstjóri: Arnþór Tryggvason, AVH ehf.
Þróun verklags við stafrænt skipulag
Verkefnisstjóri: Árni Geirsson, Alta ehf.
Ferðaþjónusta í aðalskipulagi – heildstæð stefnumótun sveitarfélaga
Verkefnisstjóri: Brynja Dögg Ingólfsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands
Kjarnasvæði í þéttbýli
Verkefnisstjóri: Gísli Rafn Guðmundsson, Landslagi ehf.
Staðsetning búsetusvæða, athafnavirkni og ferðavenjur
Verkefnisstjóri: Harpa Stefánsdóttir, Norwegian University of Life Sciences
Evaluating costal vulnerability to sea-level rise of urban areas in Iceland
Verkefnisstjóri: Nancy J. Guarderas, Háskóla Íslands
Hlutverk við þéttingu byggðar
Verkefnisstjóri: Sverrir Bollason, VSÓ Ráðgjöf
2014
Hækkuð sjávarstaða á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnisstjóri: Auður Magnúsdóttir, VSÓ Ráðgjöf
Bæjarskipulag og mótun umhverfis á Íslandi á 20. öldinni
Verkefnisstjóri: Haraldur Sigurðsson
Blágrænar ofanvatnslausnir leiðbeiningar um innleiðingu við íslenskar aðstæður
Verkefnisstjóri: Heiða Aðalsteinsdóttir, Alta ehf.
Umhverfismat áhrif framkvæmda og áætlana á samfélag. Rýni á aðferðum til að meta áhrif framkvæmda og áætlana á samfélag.
Verkefnisstjóri: Ólafur Árnason, Eflu verkfræðistofu
Skilgreining á verklagi við mat á umhverfisáhrifum hágæðakerfis almenningssamgangna.
Verkefnisstjóri: Þorsteinn R. Hermannsson, Mannvit
2013
Landslagsgreining - staðareinkenni - verkfæri til byggða- og atvinnuþróunar
Verkefnisstjóri: Auður Sveinsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands
Megindrættir íslenskrar skipulagslöggjafar - lagarammi og réttarframkvæmd
Verkefnisstjóri: Aðalheiður Jóhannsdóttir, Háskóla Íslands
Rafræn ferðavenjukönnun
Verkefnisstjóri: Kristveig Sigurðardóttir, Verkís
Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða: Sterkari staðarsjálfsmynd, staðarandi og ímynd. Aukið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, fyrirtæki, fjárfesta og nýja íbúa
Verkefnisstjóri: Matthildur Kr. Elmarsdóttir, Alta ehf.
2012
Ásýnd bæja
Verkefnisstjóri: Kristín Þorleifsdóttir, Vist og veru
Landsskipulagsstefna, mótun og þróun
Verkefnisstjóri: Eva Dís Þórðardóttir, Háskólanum í Reykjavík
Skilgreining á ræktanlegu landi
Verkefnisstjóri: Brynja Guðmundsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands
Skilvirkni og aðgengileiki mats á umhverfisáhrifum
Verkefnisstjóri: Óli Halldórsson, Þekkingarneti Þingeyinga
Skipulag húsnæðismála
Verkefnisstjóri: Salvör Jónsdóttir, Háskólanum í Reykjavík
2011
Flokkun og skilgreining landbúnaðarlands
Sigurður Jens Sigurðsson, Háskólanum í Reykjavík
Innleiðing stafræns skipulags á Íslandi
Árni Geirsson, Alta
Landbúnaðarland i skipulagsáætlunum
Salvör Jónsdóttir, Háskólanum í Reykjavík
Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða
Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi Vestfjarða