Vinnslu- og rannsóknarholur í Hverahlíð II og Meitlum suður
Umhverfismat framkvæmda – matsáætlun í kynningu
Umsagnarfrestur er til 22. janúar 2024.
Orkuveita Reykjavíkur hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir boranir á vinnslu- og rannsóknarholum í Hverahlíð II og Meitlum suður í Sveitarfélaginu Ölfusi. Matsáætlunin er aðgengileg á Skipulagsgátt. Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 22. janúar 2024.