Vindorkugarður á Grímsstöðum í Meðallandi
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu
Frestur til athugasemda er til 10. maí 2021
Mannvit fyrir hönd Qair Iceland hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum vindorkugarðs á Grímsstöðum Meðallandi, Skaftárhreppi.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. maí 2021 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.