Vatnsvinnsla í Vatnsendakrikum, Heiðmörk
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu
Frestur til athugasemda er til 9. maí 2018.
Veitur ohf. hafa lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum vatnsvinnslu í Vatnsendakrikum.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. maí 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.