Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna Örlygshafnarvegar um Hvallátur
Athugasemdafrestur er til 19. október 2020
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna Örlygshafnarvegar um Hvallátur.
Tillagan er til sýnis á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði, á vef sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði, eigi síðar en 19. október 2020