Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar, vegna nýs sorpmóttöku- og gámasvæði á Hofsósi
Athugasemdafrestur er til 8. nóvember 2024
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 , vegna nýs sorpmóttöku- og gámasvæðis á Hofsósi. Meginviðfangsefni breytingarinnar er að móta stefnu um staðsetningu iðnaðarsvæðis
I-601 þar sem gert er ráð fyrir sorpmóttöku og gámasvæði á Hofsósi.
Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins www.skagafjordur.is og í Skipulagsgátt.
Athugasemdir þurfa að berast á netfangið, saeunnkth@skagafjordur.is eða í Skipulagsgátt eigi síðar en 8. nóvember 2024.