Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna miðbæjar Þorlákshafnar
Athugasemdafrestur er til 14. ágúst 2020
Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 vegna miðbæjar Þorlákshafnar.
Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, á vef sveitarfélagsins www.olfus.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast með tölvupósti á skipulag@olfus.is eða bæjarskrifstofur eigi síðar en 14. ágúst 2020.