Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis í landi Þórisholts
Athugasemdafrestur er til 10. desember 2021
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 þar sem hluta úr landi Þórisholts er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu þar sem gert er ráð fyrir gistiþjónustu. Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulag svæðisins.
Tillagan er til sýnis hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík, á vef Mýrdalshrepps www.vik.is, og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is eigi síðar en 10. desember 2021.