Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hveragerðisbæjar vegna lóða NLFÍ og lóða við Lækjarbrún
Athugasemdafrestur er til 2. febrúar 2016
Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2005-2017 vegna lóða NLFÍ við Grænumörk 10 og Þelamörk 61 og lóða við Lækjarbrún.
Tillagan er til sýnis til 2. febrúar 2016 á bæjarskrifstofunum að Sunnumörk 2, á hveragerdi.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar eða á netfangið gfb@hveragerdi.is eigi síðar en 2. febrúar 2016.