Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna færslu á háspennulínu við Hamranes
Athugasemdafrestur er til 4. desember 2018
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna færslu á háspennulínu við Hamranes.
Tillagan er til kynningar í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu, Norðurhellu 6, á vef sveitarfélagsins www.hafnarfjordur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 6, eigi síðar en 4. desember 2018.