Tillaga að Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032
Athugasemdafrestur er til 28. maí 2021
Fjallabyggð hefur auglýst tillögu að Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.
Tillagan liggur frammi á tæknideild Fjallabyggðar að Gránugötu 24, Siglufirði, hjá Skipulagsstofnun og er einnig hægt að nálgast á www.fjallabyggd.is.
Athugasemdir þurfa að berast berast skipulags- og tæknifulltrúa, Gránugötu 24, 580 Siglufirði eða á netfangið iris@fjallabyggd.is eigi síðar en 28. maí 2021.