Þverárfjallsvegur í Refasveit
Mat á umhverfisáhrifum - Tillaga að matsáætlun
Kynningartími er til 3. september 2018
Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Þverárfjallsvegar í Refasveit og Skagastrandarvegar um Laxá í Blönduósbæ og Skagabyggð.
Tillaga að matsáætlun er aðgengileg hér
Einnig má nálgast tillöguna hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3. september 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.