Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði, Aldan og Bakkahverfi
Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar
Seyðisfjarðarkaupstaður hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um snjóflóðavarnir á Seyðisfirði
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 1. júní 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.