Efnistaka í landi Bjarga II, Hörgársveit
Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar
Frestur til þess að skila athugasemdum er til 3. júni 2013
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 22. apríl til 3. júní 2013 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Hörgársveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslu má skoða hér. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 3. júní 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.