Sundabraut
Mat á umhverfisáhrifum – matsáætlun í kynningu
Umsagnarfrestur er til 19. október 2023
Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg, hefur lagt fram matsáætlun vegna umhverfismats Sundabrautar.
Matsáætlunin liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun og er aðgengileg á Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is.
Opnir kynningarfundir verða sem hér segir:
3. okt – Klébergsskóli, Kjalarnesi, kl. 18-19.30
4. okt - Langholtsskóli, kl. 17.30-19
5. okt – Rimaskóli, kl. 17.30-19
6. okt – Vegagerðin, Suðurhrauni 3 í Garðabæ, fundur á staðnum og í streymi kl. 9-10.30 (Morgunfundur
um Sundabraut í Suðurhrauni 3 og í streymi | Facebook)
11. okt – Akranes, Tónlistarskólinn Akranesi kl. 19.30-20.45
12. okt – Mosfellsbær, staðsetning auglýst þegar nær dregur, kl. 18-19.15
Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. október 2023 til Skipulagsstofnunar í gegnum Skipulagsgátt, með tölvupósti á skipulag@skipulag.is eða með bréfpósti í Borgartún 7b, 105 Reykjavík.