Mál í kynningu


20.4.2015

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps, aðkoma að íbúðarsvæði í landi Eflingar, Reykholti

Sveitarstjórn Bláskógarbyggðar hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna breytingar á aðkomu að íbúðarsvæði í landi Eflingar í Reykholti.

Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, 840 Laugarvatni og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. Athugasemdir við tillöguna þurfa að berast skriflega til skipulagsfulltrúa fyrir lok föstudagsins 22. maí 2015. Netfang skipulagsfulltrúa er petur@sudurland.is

 

Hægt er að nálgast tillöguna hér: http://www.sbf.is/wp-content/uploads/2015/04/mál-nr4_askbr_Efling.pdf

Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðisins og er hún til sýnis á skrifstofu skipulagsfulltrúa og á heimasíðu sveitarfélagsins.


Nálgast má uppdrátt og greinargerð deiliskipulagstillögunnar hér: http://www.sbf.is/wp-content/uploads/2015/04/mál-nr8_dskbr_Efling.pdf