Landfylling í Nýja Skerjafirði - Reykjavíkurborg
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími frummatsskýrslu hefur verið framlengdur til 25. janúar 2022.
Reykjavíkurborg hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Streymisfundur um frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum verður haldinn og sendur út 13. janúar 2022 kl. 19.30, sjá nánar hér
Frummatsskýrslu og viðauka má skoða hér og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. janúar 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.