Holtavörðuheiðarlína 1
Umhverfismat - Kynning á matsáætlun
Kynningartími matsáætlunar er til 8. júní 2022
Landsnet hf. hefur lagt fram matsáætlun fyrir Holtavörðuheiðarlínu 1, 220 kV loftlínu milli Klafastaða í Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði, alls um 90 km langa.
Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn um framkvæmdina.
Matsáætlunin er aðgengileg hér, hjá skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar og skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.
Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. júní 2022 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.