Framleiðsla á 4.000 tonnum af laxi í Arnarfirði á vegum Arctic Sea Farm
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu
Kynningartími stendur frá 5. janúar til 24. janúar 2017
Arctic Sea Farm hf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum framleiðslu á 4.000 tonnum af laxi í Arnarfirði.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 24. janúar 2017 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is