Eldisstöð Röndinni Kópaskeri, Norðurþingi
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu
Frestur til athugasemda er til 13. maí 2021
Rifós hf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum eldisstöðvar á Röndinni Kópaskeri, Norðurþingi.
Tillaga að matsáætlun liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun. Hana má einnig nálgast hér. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 13. maí næstkomandi til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.