Eldisgarður, eldisstöð á Reykjanesi
Mat á umhverfisáhrifum - Kynning umhverfismatsskýrslu
Umsagnarfrestur er til 23. mars 2023
Samherji Fiskeldi ehf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats Eldisgarðs, eldisstöðvar á Reykjanesi, Sveitarfélaginu Reykjanesbæ.
Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.
Umhverfismatsskýrsla fyrir ofangreinda framkvæmd liggur frammi til kynningar í Ráðhúsi Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 í Reykjanesbæ og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b.
Umhverfismatsskýrslan ásamt viðaukum er aðgengileg hér.
Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. mars 2023 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is
Vakin er athygli á vefsjá verkefnisins þar sem einnig er hægt að nálgast öll gögn málsins.