Aukning heildarlífmassa á laxi í Arnarfirði um 4.500 tonn og breyting á afmörkun eldissvæða
Mat á umhverfisáhrifum – matsáætlun í kynningu
Umsagnarfrestur er til 15. maí 2023
Arnarlax hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats aukningar heildarlífmassa á laxi í Arnarfirði um 4.500 tonn og breytingar á afmörkun eldissvæða.
Matsáætlunin liggur frammi til kynningar hjá Muggsstofu á Bíldudal og Skipulagsstofnun til 15. maí 2023 og er aðgengileg hér .
Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. maí til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.