Blöndulína 3
Mat á umhverfisáhrifum - Tillaga að matsáætlun í kynningu
Framlengdur kynningartími er til 9. ágúst 2020
Landsnet hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Blöndulínu 3. Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og gert athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. ágúst nk. til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is