Allt að 2.500 tonna framleiðsla á laxi og laxaseiðum á vegum Laxa fiskeldis við Laxabraut, Sveitarfélaginu Ölfus
Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu
Frestur til athugasemda er til 23. maí 2018.
Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum allt að 2.500 tonna framleiðslu á laxi og laxaseiðum við Laxabraut á Þorlákshöfn.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. maí 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.