Allt að 2.500 tonna framleiðsla á laxi og laxaseiðum á vegum Laxa fiskeldis í Þorlákshöfn, Sveitarfélaginu Ölfusi
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 10. júní til 23. júlí 2020.
Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrsla og viðauki er aðgengilegt hér og á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Skipulagsstofnun og Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. júlí 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.