5.000 tonna fiskeldi Landeldis ehf. innan lóða Laxabrautar 21, 23 og 25 vestan Þorlákshafnar, Sveitarfélaginu Ölfusi
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 3. febrúar til 17. mars 2020
Landeldi ehf. hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.
Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og á Bæjarbókasafni Ölfuss, bæjarskrifstofum Ölfuss, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. mars 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Kynningarfundur:
13. febrúar 2020 kl.18.00
Versölum, ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn