Málstofa um LÝSINGU og LAGASKIL
Skipulagsstofnun boðar til málstofu um LÝSINGU og LAGASKIL þann 6. júní 2011 í Háskólanum í Reykjavík, frá kl. 13:30-15:30. Umfjöllun og umræður verða um LÝSINGU vegna svæðis-, aðal- og deiliskipulags samkvæmt nýjum skipulagslögum nr. 123/2010 og LAGASKIL fyrrum skipulags- og byggingarlaga og nýrra skipulagslaga. Farið verður yfir ferli, ábyrgðir og annað sem við á.
Framsögn verður í höndum Guðrúnar Höllu Gunnarsdóttur og Málfríðar Klöru Kristiansen, Skipulagsstofnun.
Málstofan er ætluð kjörnum fulltrúum sveitarfélaga, skipulagsfulltrúum, skipulagsráðgjöfum og öðrum sem koma að skipulagsgerð sveitarfélaga.