Aukin jarðgerð úrgangs frá steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki
Umhverfismat- ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð aukning á jarðgerð úrgangs frá steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki, Sveitarfélaginu Skagafirði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 13. desember 2021.