Deiliskipulag
Deiliskipulag nær til afmarkaðs svæðis sem myndar heildstæða einingu – hverfis, hverfishluta, götureits eða húsaþyrpingar. Þar eru sett ákvæði um byggingarheimildir og útfærslu bygginga og frágang umhverfis.
Í deiliskipulagi eru settir skilmálar um mótun byggðar og umhverfis, svo sem um stærðir, staðsetningu og notkun húsa. Einnig um yfirbragð byggðar, svo sem nánar um útfærslu og hönnun bygginga og efnisnotkun. Þá er í deiliskipulagi sett ákvæði um lóðir og almannarými eins og götur, torg, leiksvæði og almenningsgarða. Byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi skulu vera í samræmi við skipulag. Almenna reglan er að byggingaleyfi skuli byggja á deiliskipulagi, en framkvæmdaleyfi geta í tilteknum tilvikum byggt á aðalskipulagi. Nánari upplýsingar um byggingarleyfi er að finna á vef Mannvirkjastofnunar, en nánari upplýsingar um framkvæmdaleyfi má finna hér .
Hverfisskipulag kallast einfölduð útfærsla deiliskipulags sem vinna má fyrir þegar byggð hverfi þar sem ekki stendur til að fara í umfangsmikla uppbyggingu. Í hverfisskipulagi eru ekki gerðar sömu kröfur og í hefðbundnu deiliskipulagi hvað varðar framsetningu og skilmála. Þar er meira svigrúm til að setja almennar reglur og fyrirmæli um byggingarheimildir, svo sem breytingar og viðbyggingar í stað þess að skilgreina byggingarreiti og setja sérstaka skilmála um einstakar lóðir.
Deiliskipulag í gildi
Deiliskipulag í gildi með áorðnum breytingum er aðgengilegt í Skipulagsvefsjá:
Gerð deiliskipulags
Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð deiliskipulags. Skipulagsnefnd sveitarfélags annast gerð deiliskipulags í umboði sveitarstjórnar. Landeigandi eða framkvæmdaraðili getur óskað eftir því við sveitarstjórn að gerð sé tillaga að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað. Með samþykkt slíkrar tillögu gerir sveitarstjórn deiliskipulagið að sínu og ber ábyrgð á framfylgd þess.
Deiliskipulag tekur gildi þegar það hefur verið samþykkt í sveitarstjórn og birt í Stjórnartíðindum.
Kostnaður við gerð deiliskipulags greiðist af viðkomandi sveitarfélagi, nema í þeim tilvikum þegar landeigandi eða framkvæmdaraðili fær heimild til að vinna deiliskipulagstillögu á sinn kostnað.
Leiðbeiningar
- Breyting á deiliskipulagi
- Yfirlit yfir ferli deiliskipulags
- Lýsing fyrir skipulagsáætlun
- Grenndarkynning, óveruleg breyting á deiliskipulagi
- Grenndarkynning, byggingar- og framkvæmdaleyfi í þegar byggðu hverfi
- Nýtt deiliskipulag
- Dæmi um auglýsingar deiliskipulagstillagna
- Yfirferð deiliskipulagsgagna fyrir skipulagsfulltrúa og ráðgjafa
Ferli deiliskipulagsgerðar
Lýsing deiliskipulagsverkefnis
Í upphafi vinnu að deiliskipulagi tekur skipulagsnefnd sveitarfélagsins saman lýsingu fyrir deiliskipulagsverkefnið þar sem gerð er grein fyrir tildrögum skipulagsvinnunnar og hvernig fyrirhugað er að standa að skipulagsgerðinni. Ef landeigandi eða framkvæmdaraðili stendur að deiliskipulagsvinnunni, vinnur hann lýsingu og leggur fyrir sveitarstjórn. Lýsing er samþykkt í sveitarstjórn.
Lýsingin er kynnt opinberlega og almenningur fær tækifæri til að koma ábendingum á framfæri við sveitarfélagið. Samtímis er leitað umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila.
Tillaga að deiliskipulagi
Deiliskipulagstillaga er unnin í samræmi við lýsingu skipulagsverkefnisins og með hliðsjón af þeim ábendingum sem borist hafa frá almenningi og umsagnaraðilum á fyrri stigum.
Við gerð deiliskipulags eru umhverfisáhrif metin og niðurstöður umhverfismatsins nýttar við endanlega mótun skipulagstillögunnar. Deiliskipulagstillaga skal unnin í samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Samráð í vinnsluferlinu fer eftir eðli og umfangi skipulagstillögunnar.
Þegar skipulagstillaga er fullgerð er hún samþykkt af sveitarstjórn til formlegrar auglýsingar og hefur almenningur þá tækifæri til að koma á framfæri skriflegum athugasemdum.
Fullunnið deiliskipulag
Þegar frestur til athugasemda er liðinn tekur skipulagsnefnd afstöðu til athugasemda og leggur fram endanlega tillögu til samþykktar í sveitarstjórn. Deiliskipulagið ásamt fylgiskjölum er síðan sent Skipulagsstofnun til yfirferðar.
Deiliskipulag tekur gildi þegar það hefur verið samþykkt af sveitarstjórn og auglýst
í B–deild Stjórnartíðinda.
Sé deiliskipulag ekki auglýst til gildistöku í Stjórnartíðindum innan árs frá því að athugasemdafresti við deiliskipulagtillögu lauk, þarf að auglýsa deiliskipulagstillöguna á ný til kynningar og athugasemda.