Landsskipulagsstefna
Landsskipulagsstefna felur í sér stefnu í skipulagsmálum fyrir landið í heild til leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga og aðra áætlanagerð um þróun byggðar og landnýtingu.
Landsskipulagsstefna er unnin á grundvelli skipulagslaga og laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.
Á vef landsskipulagsstefnu, landsskipulag.is, má nálgast nánari upplýsingar um landsskipulagsstefnu, svo sem um gildandi stefnu og framfylgd hennar auk upplýsinga um ferli við mótun nýrrar landsskipulagsstefnu.