Um skipulag bæja - Aldarspegill
Gefið út á 100 ára útgáfuafmæli rits Guðmundar Hannessonar
læknis „Um skipulag bæja“ árið 2016. „Um skipulag bæja – Aldarspegill“ hefur að
geyma endurútgáfu á riti Guðmundar ásamt
greinasafninu „Aldarspegill – samtal við Guðmund Hannesson“.
Rit Guðmundar „Um skipulag bæja“ hafði með margvíslegum hætti
áhrif á þróun skipulagsmála hér á landi og nýttist sem leiðbeiningarit í þeirri
miklu skipulagsvinnu sem unnin var fyrir þéttbýlisstaði
landsins fram að seinna stríði. Þó mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan rit
Guðmundar kom út, og bæir landsins tekið breytingum, á rit hans ennþá fullt
erindi í umræðu um skipulagsmál.
Í „Aldarspegli“ er beint sjónum að ólíkum viðfangsefnum
skipulagsmála sem Guðmundur fjallaði um í riti sínu. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
fjallar um bæjarmynd og byggðamynstur, Pétur H. Ármannsson um húsagerð og
hönnun, Salvör Jónsdóttir skoðar félagslega og efnahagslega þætti skipulagsmála
og Dagur B. Eggertsson skrifar um tengsl lýðheilsu og skipulags. Loks bregða
Páll Pétursson og Sigrún Magnúsdóttir ljósi á persónu og lífshlaup Guðmundar
Hannessonar.
Ritstjórar útgáfunnar eru Ásdís Hlökk Theodórsdóttir og Sigurður
Svavarsson.
Útgáfan er fáanleg hjá Skipulagsstofnun og Hinu íslenska
bókmenntafélagi.
Útgefið: 2016