Umhverfismatsdagurinn 2019
Norræna húsinu, 13. september kl. 13-16
Í tilefni af yfirstandandi endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum beinum við sjónum að virkni umhverfismats fyrir samfélagið og umbótum á framkvæmd umhverfismats.
Við fáum framlög frá reyndu sveitarstjórnarfólki um sýn þeirra á það hverju við viljum að umhverfismat skili samfélaginu og hvernig það getur best stutt þær ákvarðanir sem taka þarf um byggðaþróun og landnýtingu á hverjum tíma. Eins verður sagt frá yfirstandandi vinnu við endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum og kynntur samanburður á löggjöf okkar og nokkurra nágrannalanda.
Dagskrá
- Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
Umhverfismat í viðjum vana og væntinga. Upptaka - Kolbeinn Óttarsson Proppé, alþingismaður og formaður starfshóps um endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum
Aftur að teikniborðinu - Endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum. Upptaka - Aagot Óskarsdóttir, lögfræðingur
Samanburður á löggjöf nokkurra nágrannaþjóða um mat á umhverfisáhrifum. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var til undirbúnings heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum. Upptaka - Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur hjá Skipulagsstofnun
Hvað má læra af dómum og úrskurðum á sviði umhverfismats? Upptaka - Kaffihlé
- Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði
Umhverfismat frá sjónarhóli sveitarstjórans. Upptaka - Óli Halldórsson, sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi og forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga
MAT. Upptaka - Umræður. Upptaka
Björn Þór Sigbjörnsson fjölmiðlamaður mun stýra fundi og umræðum.