Fréttir


12.4.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna fjölgunar gistirýma að Seljavöllum 2A

Skipulagsstofnun staðfesti 11. apríl 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. mars 2024.

Í breytingunni felst að gistirýmum á svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ10 er fjölgað úr 20 í 30. Sérákvæði breytist en ekki uppdráttur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.